Víkari.is - Fréttavefur Bolvíkinga
Þú þarft Flash plugin til að sjá þennan banner!
Fréttir | 9.5.2012 00:20:50 |
Sirrý með 64 tonn á einni viku

Það hefur verið mokveiði hjá skipverjunum á Sirrý ÍS að undanförnu en báturinn hefur iðulega komið vel hlaðinn að landi þegar gefið hefur á sjó. Sirrý ÍS er 15 tonna smábátur sem gerður er út á landbeitta línu en skipstjórar á bátnum eru Snorri Harðarson og Falur Þorkelsson. Fyrstu vikuna í maí hefur Sirrý komið með tæp 64 tonn að landi í 7 róðrum eða rúmlega 9,1 tonn að meðaltali í róðri. Besti róðurinn gaf rúmlega 11 tonn en sá slakasti 7,4 tonn. Aflinn hjá Sirrý í apríl var einnig mjög góður eða 184 tonn í 25 róðrum eða 7,4 tonn að meðaltali í róðri. Uppistaðan í aflanum hjá Sirrý undanfarnar vikur hefur verið steinbítur og hefur hann fengist á frekar litlu svæði út af Skálavík.

Aðrir bolvískir bátar hafa einnig fiskað vel í maí þótt þeir eigi nokkuð í land með að ná Sirrý í aflabrögðum. Fríða Dagmar ÍS er með 42,1 tonn, Hrólfur Einarsson ÍS er með 41,9 tonn, Guðmundur Einarsson ÍS er með 39 tonn og Einar Hálfdáns ÍS er með 34,6 tonn en allir bátarnir hafa farið í sjö róðra. Þá er aflinn hjá línuskipinu Þorláki ÍS farinn að glæðast eftir slaka veiði í apríl en Þorlákur hefur landað tvívegis í maí og er aflinn 63,9 tonn.  Alls hafa tæplega 30 strandveiðibátar landað í Bolungarvík þá fjóra daga sem veiðar hafa verið leyfðar í maí og er afli þeirra kominn í 61,2 tonn.

 


Næstu viðburðir
Í dag laugardagur, 25. maí 2013
Hreinsum bæinn

Bolvíkingum er boðið að taka þátt í hreinsunarátaki laugardaginn 25. maí  kl. 9:30 - 12:00.

Grillað verður við Sundlaugina að hreinsun lokinni eða kl. 13:15.

föstudagur, 31. maí 2013
Þorskurinn 2013 - Tónlistarhátið í Einarshúsi
Þorskurinn 2013 verður haldin í bakgarði Einarshúss föstudaginn 31. maí næstkomandi og hefst hátíðin kl 18:00
laugardagur, 1. júní 2013
Hátíðarmatseðill í Einarshúsi

Sérstakur hátíðarkvöldverður verður haldinn í Einarshúsi á Sjómannadagshelginn eða þann 1.júní næstkomandi kl 20:00. Er það Snorri Bogason matreiðslumeistari sem verður gestakokkur og ætlar hann að matreiða guðdómlega gæðarétti.fyrir gesti hússins.

Sjá matseðil á www.einarshusid.is

Nýjustu myndirnar
Smelltu til að skoða Lífið við höfnina
Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.

Bolungarvík á BB.is
Fréttir á Bolungarvík.is
Fundargerðir á Bolungarvík.is
Aðsendar greinar
Smelltu til að skoða Við þökkum fyrir okkur
29.4.2013 14:52:40

Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...

Smelltu til að skoða Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina
26.4.2013 20:05:02

Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...

Myndbandið
Nýleg virkni