Víkari.is - Fréttavefur Bolvíkinga
Þú þarft Flash plugin til að sjá þennan banner!
Vísnahorn Víkara | 30.9.2011 15:00:00 |

Nú skal gripið niður í gamanvísur sem fluttar voru á jólafagnaði sem starfsfólk ráðhússins hélt fyrir margt löngu síðan. Þar var gert góðlátlegt grín af starfsfólki eins og venja er til á slíkum stundum. Ennþá má lesa margt út úr vísunum sem á við enn þann dag í dag en vísurnar voru að mestu leiti tilbúningur eins og gengur og gerist og restin dagsannar lygar eins og jafnan er í slíkum kveðskap. 

 

Ólafur Kristjánsson fyrrverandi bæjarsjóri var að láta af störfum á þessum tímapunkti en ráðningasamningur hans hafði verið framlengdur af þáverandi bæjaryfirvöldum. Þegar þarna var komið við sögu var hann að hætta og glaðbeittur sló á létta strengi á píanóinu og spilaði undir þessar gamanvísur með einkar lagvissri söngkonu og textahöfundi.

 

Í bankanum hún ...


Vísnahorn Víkara | 19.1.2011 |

Senn líður að þorrablóti Bolvíkinga og við hæfi að birta þorrablótsbrag sem sunginn var á blótinu 2005.

Nú fríður flokkur komin er hér saman
svo fýrugur á mannamót.
Hér skulum hafa gleði, glaum og gaman
og glaðbeitt halda þorrablót.
Og þjóðbúningum klæðumst líkt og gerðum forðum
af gagnlegum og góðum sið.
Og þorraþræla syngja skulum undir borðum,
sem lífga upp á samkvæmið.

Af þorramat nú magann skulum metta
og borða hér á okkur gat.
Úr sneysafullum trogum ýmsra rétta
er yfirfylla sérhvert fat.
Þar hákarlinn og harðfiskurinn vel sér sóma
og hangikjöt og stappa með.
Þar búðingar sem bragðast vel með þeyttum rjóma
bæta okkar góða geð.

Ef óþægindi konu fer að þjaka
þá ...


Vísnahorn Víkara | 30.9.2010 | Ragna

Sigurvin Guðbjartsson er hagyrðingur góður og yrkir hér einkar fallegt ljóð um Bolungarvík. Þar kemur fram að hvergi hann sælli í veröldu væri en við þetta síkvika haf sem bylgjast við ströndina í Víkinni og óskir hans eru að staðurinn blómstri  og framtíðin verði af hamingju rík.

 

Bolungarvík heitir bærinn minn kæri,
byggðarlag fagurt sem sem drottinn mér gaf.
Hvergi ég sælli í veröldu væri,
en við þetta gjöfula síkvika haf.
Þuríði fannst þetta framtíðar staður,
fyrst þegar kom hún og settist hér að.
Völusteinn orti og undi sér glaður,
örlagaspá hans var fest hér á blað.
Fortíðin geymist um aldur og ævi,
öll mun þín framtíð af hamingju rík.
Megi þú blómstra, hjá svalköldum sævi,
svipríka hugljúfa ...


Smáauglýsingar

Smáauglýsingar á Víkari.is

Viltu kaupa/selja/leigja? Skráðu smáauglýsinguna þína á Víkari.is

BJARNABÚÐ

FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM- BARNAFATNAÐUR - KVENNFATNAÐUR - LEIKFÖNG - GJAFAVARA - OG. FL OG. FL. KVEÐJA BJARNABÚÐ EIN STÖK BÚÐ

Ótrúlegt úrval í Vélvirkjanum

Ótrúlegt úrval af vörum í verslun okkar að Aðalstræti 13-15. Verslunin er oft kölluð ótrúlega búðin. Vélvirkinn s/f verslun.

Herbergi til leigu?

18 ára reglusamur piltur óskar eftir herbergi til leigu í sumar. Hafið sammband við Arnar Pál í síma 894-0705

Sölufólk óskast...

.. til að selja/kynna mjög eftirsóknarvert næringarsúkkulaði. Nýtt í Evrópu. Einstakar vörur sem allir vilja kaupa sér aftur og aftur. 8643580 hanna@phlifsstill.is

Vantar íbúð/hús til leigu

5 manna fjölskylda óskar eftir að leiga 4-5 herbergja íbúð/hús í Bolungarvík. Reglusöm og reyklaus. Upplýsingar gefur Helgi í síma 8695145.

Eldra efni
Vísnahorn Víkara | 15.3.2010
Vísnahorn Víkara | 12.3.2010 | Ragna
Vísnahorn Víkara | 24.2.2010
Vísnahorn Víkara | 27.1.2010 | Ragna
Vísnahorn Víkara | 19.1.2010
Vísnahorn Víkara | 29.12.2009 | Ragna
Vísnahorn Víkara | 11.12.2009
Vísnahorn Víkara | 21.9.2009
Vísnahorn Víkara | 14.9.2009
Vísnahorn Víkara | 24.6.2009 | Ragna
Vísnahorn Víkara | 20.4.2009
Vísnahorn Víkara | 10.4.2009
Vísnahorn Víkara | 30.3.2009
Vísnahorn Víkara | 10.3.2009
Vísnahorn Víkara | 27.1.2009
Vísnahorn Víkara | 12.1.2009
Næstu viðburðir
Í dag miðvikudagur, 22. maí 2013
Tónleikar dúettsins Funa í Einarshúsi

Dúettinn Funi er skipaður þeim Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Þau flytja lög af nýjum hljómdiski sem nefnist Flúr og inniheldur fallega íslenska þjóðlagatónlist. Aðgangseyrir er 1500 krónur.

föstudagur, 24. maí 2013
Kjallarakeppni í Einarshúsi
Síðasta keppnin í vetur hefst kl. 22:40 eða um það bil
föstudagur, 24. maí 2013
Spilavist í Einarshúsi
Þriðja og síðasta kvöldið í vetur hefst kl. 21:00
Nýjustu myndirnar
Smelltu til að skoða Lífið við höfnina
Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.

Bolungarvík á BB.is
Fréttir á Bolungarvík.is
Fundargerðir á Bolungarvík.is
Aðsendar greinar
Smelltu til að skoða Við þökkum fyrir okkur
29.4.2013 14:52:40

Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...

Smelltu til að skoða Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina
26.4.2013 20:05:02

Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...

Myndbandið
Nýleg virkni