Víkari.is - Fréttavefur Bolvíkinga
Þú þarft Flash plugin til að sjá þennan banner!
Hugrenningar úr Hólshreppi | 6.2.2008 | Kristján Jónsson
Samhjálp í síldartunnu

Pistlahöfundur fór á dögunum í Smáralindina sem honum er reyndar meinilla við. Fer yfirleitt ekki í þessar verslunarmiðstöðvar nema brýna nauðsyn beri til. Þegar á hólminn er komið líður manni alltaf eins og síld í tunnu. Þar sem mér leiðist óskaplega að vera eins og rolla í rétt, reyni ég yfirleitt að hraða mér út að erindi loknu.

Í síðustu heimsókn minni stóð góðleg kona í vegi fyrir mér á leið minni út úr Smáralindinni. Hún umlaði eitthvað um samhjálp og einhver börn úti í heimi. Þar sem ekki var algerlega hjá því komist að taka eftir konunni, þá reif ég af henni einhvern snepil sem hún veifaði framan í mig af áfergju.
„Ég kíki á þetta“ sagði pistlahöfundur um leið og ég strunsaði í áttina að næsta útgangi. Nokkrum hröðum skrefum síðar heyrist kallað á eftir pistlahöfundi: ,,Fyrirgefðu. Þetta er happdrættismiði. Þú þarft að borga fyrir hann,“ sagði konan fremur óttasleginn, enda líklega ekki vön því að stæðilegir menn hrifsi af henni happdrættismiða og taki síðan strikið að næsta neyðarútgangi.

Knús knús
Kristján Jónsson


Næstu viðburðir
Í dag miðvikudagur, 22. maí 2013
Tónleikar dúettsins Funa í Einarshúsi

Dúettinn Funi er skipaður þeim Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Þau flytja lög af nýjum hljómdiski sem nefnist Flúr og inniheldur fallega íslenska þjóðlagatónlist. Aðgangseyrir er 1500 krónur.

föstudagur, 24. maí 2013
Kjallarakeppni í Einarshúsi
Síðasta keppnin í vetur hefst kl. 22:40 eða um það bil
föstudagur, 24. maí 2013
Spilavist í Einarshúsi
Þriðja og síðasta kvöldið í vetur hefst kl. 21:00
Nýjustu myndirnar
Smelltu til að skoða Lífið við höfnina
Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.

Bolungarvík á BB.is
Fréttir á Bolungarvík.is
Fundargerðir á Bolungarvík.is
Aðsendar greinar
Smelltu til að skoða Við þökkum fyrir okkur
29.4.2013 14:52:40

Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...

Smelltu til að skoða Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina
26.4.2013 20:05:02

Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...

Myndbandið
Nýleg virkni