Víkari.is - Fréttavefur Bolvíkinga
Þú þarft Flash plugin til að sjá þennan banner!
Saga Bolungarvíkur | 1.1.2008 |

Landnámskona Bolungavíkur, Þuríður sundafyllir, átti áður heima á Hálogalandi í Noregi. Hún var skörungur mikill og kunni vel að leysa vanda annara. Þjóðtrúin segir hana hafa verið völvu eða seiðakonu, sem þó beitti þekkingu sinni einkum öðrum til góðs.


Landnámabók, sem segir frá landnámi hennar, greini frá þeirri sögn um fjölkynngi Þuríðar að:
Eitthvert ár þraut afla á fiskislóðum heimabyggðar hennar. Sneyddist þá svo um föng öll, að hallæri varð um Hálogaland. Þá settist Þuríður á seiðhjall sinn og efldi seið. Tókst henni svo, að öll sund fylltust af fiski. Með þessu forðaði hún byggðarlagi sínu frá hörmungum yfirvofandi hungursneyðar.
Af þessu fékk Þuríður viðurnefni sitt “sundafyllir”.

Ekki er vitað hvað valdið hefur, en svo fór að ...


Saga Bolungarvíkur | 1.1.2008 | Finnbogi Bernódusson

Það er fagurt veður, sólbjartur sumardagur. Fjallagolan er svo hæg, að hún ýrir ekki hafflötinn. Aðeins hér og þar sjást gárar eða dökkir blettir. Víkin milli hinna háu, sæbröttu fjalla, er böðuð í sól. Sandurinn fyrir víkurbotninum morar af fugli. Ós mikill fellur til sjávar úr vatninu í dalnum. En frá vatninu breiðist grasslétta mikil og fögur, vaxin háu dimmgrænu kjarngresi, og nær fram að háum malarkambi við ströndina. Sléttu þessa hina fögru hafa fuglar ræktað um aldaraðir. Undir háu fjalli í miðri víkinni, þar sem örninn býr, konungur fjallanna, rís úr umhverfinu hár og ummálsmikill hóll, lyngi vaxinn. Þar gengur dalur til vesturs. Eftir dal þessum rennur á. Sjór fellur upp í ána með flóðum og myndar þar stöðuvatn, sem svo fjarar er sjór lækkar. Vogur skerst inn, utan við hólinn mikla. Utar taka við lynggróin holt og ...


Saga Bolungarvíkur | 1.1.2008 | Finnbogi Bernódusson

Lítið er nú vitað um Völu-Stein, son Þuríðar. Þó voru uppi þrálátar sagnir um það, að hann hefði fyrstu reist byggð á Hóli, sem þá var Lynghóll kallaður.


Jóhann Jóhannsson á Hanhóli, afabróðir minn, sagði mér að til mundi hafa verið saga nokkur af Völu-Steini. Kvaðst hann hafa heyrt föður sinn, Jóhann eldri, segja frá því, að hann hefði á yngri árum séð brot eða rifrildi úr einhverri sögu, þar sem Völu-Steini hafi verið lýst nokkuð ýtarlega. Taldi hann ekki ólíklegt að brot þetta hefði verið úr skráðri sögu af Völu-Steini, sem svo hafi glastast eins og flestar sögur og þættir hinna fornu Íslendinga, sem hlotið munu hafa þau örlög. Ég mun nú til gamans setja þessa lýsingu hér, eftir því sem Jóhann minnti að faðir sinn hefði sagt hana.

Völu-Steinn var maður ...


Smáauglýsingar

Smáauglýsingar á Víkari.is

Viltu kaupa/selja/leigja? Skráðu smáauglýsinguna þína á Víkari.is

BJARNABÚÐ

FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM- BARNAFATNAÐUR - KVENNFATNAÐUR - LEIKFÖNG - GJAFAVARA - OG. FL OG. FL. KVEÐJA BJARNABÚÐ EIN STÖK BÚÐ

Ótrúlegt úrval í Vélvirkjanum

Ótrúlegt úrval af vörum í verslun okkar að Aðalstræti 13-15. Verslunin er oft kölluð ótrúlega búðin. Vélvirkinn s/f verslun.

Herbergi til leigu?

18 ára reglusamur piltur óskar eftir herbergi til leigu í sumar. Hafið sammband við Arnar Pál í síma 894-0705

Sölufólk óskast...

.. til að selja/kynna mjög eftirsóknarvert næringarsúkkulaði. Nýtt í Evrópu. Einstakar vörur sem allir vilja kaupa sér aftur og aftur. 8643580 hanna@phlifsstill.is

Vantar íbúð/hús til leigu

5 manna fjölskylda óskar eftir að leiga 4-5 herbergja íbúð/hús í Bolungarvík. Reglusöm og reyklaus. Upplýsingar gefur Helgi í síma 8695145.

Eldra efni
Saga Bolungarvíkur | 21.11.2007
Saga Bolungarvíkur | 19.11.2007
Næstu viðburðir
Í dag miðvikudagur, 22. maí 2013
Tónleikar dúettsins Funa í Einarshúsi

Dúettinn Funi er skipaður þeim Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Þau flytja lög af nýjum hljómdiski sem nefnist Flúr og inniheldur fallega íslenska þjóðlagatónlist. Aðgangseyrir er 1500 krónur.

föstudagur, 24. maí 2013
Kjallarakeppni í Einarshúsi
Síðasta keppnin í vetur hefst kl. 22:40 eða um það bil
föstudagur, 24. maí 2013
Spilavist í Einarshúsi
Þriðja og síðasta kvöldið í vetur hefst kl. 21:00
Nýjustu myndirnar
Smelltu til að skoða Lífið við höfnina
Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.

Bolungarvík á BB.is
Fréttir á Bolungarvík.is
Fundargerðir á Bolungarvík.is
Aðsendar greinar
Smelltu til að skoða Við þökkum fyrir okkur
29.4.2013 14:52:40

Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...

Smelltu til að skoða Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina
26.4.2013 20:05:02

Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...

Myndbandið
Nýleg virkni