Víkari.is - Fréttavefur Bolvíkinga
Þú þarft Flash plugin til að sjá þennan banner!
Íþróttir | 3.8.2012 00:35:54 |
Þrjú golfmót um Verslunarmannahelgina

Það verður nóg um að vera hjá bolvískum kylfingum um Verslunarmannanhelgina en fyrirhuguð eru þrjú golfmót um helgina. Á föstudagskvöld verður "Shoot-out" mót á Syðridalsvelli þar sem keppnisfyrirkomulagið er þannig að smátt og smátt verða kylfingar úr leik þar til einn þeirra stendur uppi sem sigurvegari. Á laugardaginn verður bryddað upp á þeirri nýbreytni að leiknar verða 9 holur á þremur golfvöllum eða samtals 27 holur en það mót kallast Niðurfjarðarhetjan og verður leikið á golfvöllunum í Bolungarvík, Ísafirði og Þingeyri. Að venju ljúka kylfingar Verslunarmannahelginni á hinu sívinsæla Pepsi-móti mánudaginn 6. ágúst en þá verða leiknar 18 holur í punktakeppni þar sem vegleg verðlaun verða í boði.

 

Skráning í golfmótin þrjú er á golf.is

 


Næstu viðburðir
Í dag fimmtudagur, 23. maí 2013
Listasmiðjan Bolungarvík.

Opið í kvöld frá l 19:00-22:00.

föstudagur, 24. maí 2013
Kjallarakeppni í Einarshúsi
Síðasta keppnin í vetur hefst kl. 22:40 eða um það bil
föstudagur, 24. maí 2013
Spilavist í Einarshúsi
Þriðja og síðasta kvöldið í vetur hefst kl. 21:00
Nýjustu myndirnar
Smelltu til að skoða Lífið við höfnina
Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.

Bolungarvík á BB.is
Fréttir á Bolungarvík.is
Fundargerðir á Bolungarvík.is
Aðsendar greinar
Smelltu til að skoða Við þökkum fyrir okkur
29.4.2013 14:52:40

Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...

Smelltu til að skoða Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina
26.4.2013 20:05:02

Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...

Myndbandið
Nýleg virkni