Í dag afhenti Sjálfsbjörg félag fatlaðra í Bolungarvík Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur formlega tæki sem félagið keypti nýverið. Að þessu sinni gaf Sjálfsbjörg Sjúkraþjálfuninni þrekhjól og cross trainer ( fjölþjálfi) og Heilsugæslan fékk ljósalampa fyrir húðsjúkdóma. Öll tæki til sjúkraþjálfunar sem notuð eru í Bolungarvík til endurhæfingar sjúkra einstaklinga eru gefin fyrir fé sem Sjálfsbjörg hefur safnað með fjáröflunum undanfarin ár. Jólabingó Sjálfsbjargar hefur verið ein helsta tekjulind félagsins um árabil en einnig leggjast félagar í Sjálfsbjörg í pönnukökubakstur á þorranum og bjóða bæjarbúum til kaups og fagna í leiðinni sólarkomu. Glögg má því sjá nauðsyn þess að eiga slíkt félag í bænum sem styður og styrkir við bakið á þeim sem á þurfta að halda og hlúða að mannúðarmálum.
Það var Þröstur Óskarsson framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur sem tók formlega við þessari höfðinglegu gjöf og þakkaði félögum í Sjálfsbjörg fyrir tækin og færði félaginu þakkarskjal frá stofnuninni. Einnig sagði Hulda Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri nokkur vel valin orð og Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari gat varla leynt gleði sinni yfir þessari viðbót í safn tækja í Sjúkraþjálfunina. Nú stefnir Fanney á að koma á fót gigtarhópi en forsenda fyrir því að slíkt væri hægt var að eignast þessi tæki sem nú eru komin í hús. Tækin eru í stöðugri notkun og nýting þeirra er góð. Eldri borgarar notfæra sér aðstöðu í sjúkraþjálfun Bolungarvíkur og glöggt má sjá hversu liðugir þeir eru að jafnaði og trúlega má þakka það þeim tækjum sem Sjálfsbjörg hefur gefið gegnum árin.
Andvirði þessara tækja sem Sjálfsbjörg gaf að þessu sinnu eru um hálf milljón króna og það voru kampakátar konur úr stjórn Sjálfsbjörg, þær Anna Torfadóttir formaður, Margrét Ólafsdóttir og Birna Pálsdóttir, sem afhentu tækin í dag við hátíðlega athöfn.











