Fréttir | 25.2.2008 | Ragna
Sjálfsbjörg gefur tćki til sjúkraţjálfunar
Í dag afhenti Sjálfsbjörg félag fatlaðra í Bolungarvík Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur formlega tæki sem félagið keypti nýverið. Að þessu sinni gaf Sjálfsbjörg Sjúkraþjálfuninni þrekhjól og cross trainer ( fjölþjálfi) og Heilsugæslan fékk ljósalampa fyrir húðsjúkdóma. Öll tæki til sjúkraþjálfunar sem notuð eru í Bolungarvík til endurhæfingar sjúkra einstaklinga eru gefin fyrir fé sem Sjálfsbjörg hefur safnað með fjáröflunum undanfarin ár. Jólabingó Sjálfsbjargar hefur verið ein helsta tekjulind félagsins um árabil en einnig leggjast félagar í Sjálfsbjörg í pönnukökubakstur á þorranum og bjóða bæjarbúum til kaups og fagna í leiðinni sólarkomu. Glögg má því sjá nauðsyn þess að eiga slíkt félag í bænum sem styður og styrkir við bakið á þeim sem á þurfta að halda og hlúða að mannúðarmálum.
Það var Þröstur Óskarsson framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur sem tók formlega við þessari höfðinglegu gjöf og þakkaði félögum í Sjálfsbjörg fyrir tækin og færði félaginu þakkarskjal frá stofnuninni. Einnig sagði Hulda Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri nokkur vel valin orð og Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari gat varla leynt gleði sinni yfir þessari viðbót í safn tækja í Sjúkraþjálfunina. Nú stefnir Fanney á að koma á fót gigtarhópi en forsenda fyrir því að slíkt væri hægt var að eignast þessi tæki sem nú eru komin í hús. Tækin eru í stöðugri notkun og nýting þeirra er góð. Eldri borgarar notfæra sér aðstöðu í sjúkraþjálfun Bolungarvíkur og glöggt má sjá hversu liðugir þeir eru að jafnaði og trúlega má þakka það þeim tækjum sem Sjálfsbjörg hefur gefið gegnum árin.
Andvirði þessara tækja sem Sjálfsbjörg gaf að þessu sinnu eru um hálf milljón króna og það voru kampakátar konur úr stjórn Sjálfsbjörg, þær Anna Torfadóttir formaður, Margrét Ólafsdóttir og Birna Pálsdóttir, sem afhentu tækin í dag við hátíðlega athöfn.
Fréttir | 19. maí 2010 09:34 | bb.is
Fréttavefurinn bb.is greinir frá því að hagnaður af rekstri Bolungarvíkurhafnar hafi ...
Tilkynningar | 19. maí 2010 09:27 | bolungarvik.is
Íþróttmiðstöðin Árbær auglýsir eftir starfskröftum af báðum ...
Fréttir | 18. maí 2010 21:07 | Ragna
Mikið líf er í Bolungarvíkurhöfn þessa dagana og fjöldinn allur af bátum liggur ...
Tilkynningar | 18. maí 2010 20:56 | Ragna
Kjörskrá vegna sveitastjórnarkosninga sem fram fer 29. maí 2010 liggur frammi til kjördags á ...
Kosningar 2010 | 18. maí 2010 09:46 | Ólafur Kristjánsson
Á fjögurra ára fresti kjósum við sjö aðalmenn til að fara með stjórn ...
Fréttir | 16. maí 2010 21:59 |
Bæjarráð Bolungarvíkur fjallaði um stöðu heilsugæslulæknis í ...
Fréttir | 16. maí 2010 20:44 |
Helstu niðurstöður úr skýrslu Hundraðdaganefndar sem skipuð var um könnun á ...
Íţróttir | 14. maí 2010 11:31 | Ragna
Opinn fyrirlestur undir yfriskriftinni " Lifðu lífinu lifandi" verður haldinn í dag, ...
Fréttir | 13. maí 2010 12:05 | Baldur
Bolvíkingar héldu sinn árlega hreinsunardag 8. maí síðastliðinn. Um 50 manns tóku ...
Víkari vikunnar | 13. maí 2010 09:53 | Guđbjörg Stefanía Hafţórsdóttir
Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir er Víkari vikunnar að þessu sinni. ...
Menning og mannlíf | 13. maí 2010 09:49 |
Aftur og loksins -Megakukl í fyrsta sinn í Einarshúsi í Bolungarvík föstudagskveldið ...
Menning og mannlíf | 13. maí 2010 09:44 |
Fyrri styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2010 fer fram í ...
Fréttir | 12. maí 2010 13:37 |
"Efling sjávarbyggðanna - aukið réttlæti!" er yfirskrift almenns baráttufundar fyrir ...
Pistlar | 12. maí 2010 10:47 | Íris Sveisdóttir
Kæru Bolvíkingar! Næstum 10 ár hef ég starfað sem læknir ykkar Bolvíkinga. ...
Fréttir | 11. maí 2010 21:13 | bb.is
Ásgerður Jónasdóttir í Bolungarvík fór holu í höggi á Islantilla ...