Fréttir | 25.2.2008 | Ragna
Sjálfsbjörg gefur tćki til sjúkraţjálfunar
Í dag afhenti Sjálfsbjörg félag fatlaðra í Bolungarvík Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur formlega tæki sem félagið keypti nýverið. Að þessu sinni gaf Sjálfsbjörg Sjúkraþjálfuninni þrekhjól og cross trainer ( fjölþjálfi) og Heilsugæslan fékk ljósalampa fyrir húðsjúkdóma. Öll tæki til sjúkraþjálfunar sem notuð eru í Bolungarvík til endurhæfingar sjúkra einstaklinga eru gefin fyrir fé sem Sjálfsbjörg hefur safnað með fjáröflunum undanfarin ár. Jólabingó Sjálfsbjargar hefur verið ein helsta tekjulind félagsins um árabil en einnig leggjast félagar í Sjálfsbjörg í pönnukökubakstur á þorranum og bjóða bæjarbúum til kaups og fagna í leiðinni sólarkomu. Glögg má því sjá nauðsyn þess að eiga slíkt félag í bænum sem styður og styrkir við bakið á þeim sem á þurfta að halda og hlúða að mannúðarmálum.
Það var Þröstur Óskarsson framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur sem tók formlega við þessari höfðinglegu gjöf og þakkaði félögum í Sjálfsbjörg fyrir tækin og færði félaginu þakkarskjal frá stofnuninni. Einnig sagði Hulda Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri nokkur vel valin orð og Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari gat varla leynt gleði sinni yfir þessari viðbót í safn tækja í Sjúkraþjálfunina. Nú stefnir Fanney á að koma á fót gigtarhópi en forsenda fyrir því að slíkt væri hægt var að eignast þessi tæki sem nú eru komin í hús. Tækin eru í stöðugri notkun og nýting þeirra er góð. Eldri borgarar notfæra sér aðstöðu í sjúkraþjálfun Bolungarvíkur og glöggt má sjá hversu liðugir þeir eru að jafnaði og trúlega má þakka það þeim tækjum sem Sjálfsbjörg hefur gefið gegnum árin.
Andvirði þessara tækja sem Sjálfsbjörg gaf að þessu sinnu eru um hálf milljón króna og það voru kampakátar konur úr stjórn Sjálfsbjörg, þær Anna Torfadóttir formaður, Margrét Ólafsdóttir og Birna Pálsdóttir, sem afhentu tækin í dag við hátíðlega athöfn.
Fréttir | 2. febrúar 2010 23:54 | Ragna
Brimbrjóturinn er kominn í fulla notkun og búið að festa kranana á sinn stað og ...
Fréttir | 2. febrúar 2010 23:33 | Ragna
Barnið í vagninum lét ekkert koma sér úr jafnvægi og svaf vært fyrir utan ...
Fréttir | 2. febrúar 2010 23:14 |
Krakkarnir í Dægradvöl Grunnskóla Bolungarvíkur skelltu sér á skauta á ...
Fréttir | 2. febrúar 2010 09:08 | Ragna
Mjög gott skautasvell er nú á Syðridalsvatni og búið að vera undanfarna daga. Þykir ...
Víkari vikunnar | 1. febrúar 2010 23:10 | Jakob Elías Jakobsson
Jakob Elías Jakobsson sem gjarnan er kallaður "Belli" er Víkari vikunnar að þessu sinni. Hann ...
Fréttir | 31. janúar 2010 13:49 |
Tinna Guðmundsdóttir og Þórunn Emma Sigurðardóttir urðu Íslandsmeistarar ...
Fréttir | 30. janúar 2010 01:49 | Fiskifréttir
Völusteinn ehf. í Bolungarvík tók yfir eignir Festar ehf. í Hafnarfirði nú um ...
Íţróttir | 30. janúar 2010 01:27 |
Héraðssamband Bolungarvíkur hvetur fyrirtæki og einstaklinga til að taka þátt í ...
Menning og mannlíf | 29. janúar 2010 01:31 | Ragna
Árshátið Grunnskólans í Bolungarvík var haldin í gærkvöld í ...
Fréttir | 28. janúar 2010 23:29 | Baldur
Bolvískir sjómenn eru einstaklega aflasælir þessa dagana og til marks um það hefur verið ...
Tilkynningar | 28. janúar 2010 23:02 |
Það er mikið hagsmunamál fyrir alla íbúa landsins að fréttamenn og annað ...
Vísnahorn Víkara | 27. janúar 2010 19:38 | Ragna
Nú skal birtur bæjarbragur sem fluttur var á þorrablóti í Bolungarvík ...
Tilkynningar | 27. janúar 2010 10:35 |
Samtök Náttúrustofa standa fyrir mánaðarlegum fræðsluerindum í gegnum ...
Skák | 27. janúar 2010 10:15 | Baldur
Bolvísku skákmennirnir Halldór Grétar Einarsson og Magnús Pálmi Örnólfsson ...
Fréttir | 26. janúar 2010 23:44 |
Karitas S. Ingimarsdóttir komst í annað sinn á svokallaðan forsetalista hjá ...