Fréttir | 25.2.2008 | Ragna
Sjálfsbjörg gefur tćki til sjúkraţjálfunar
Í dag afhenti Sjálfsbjörg félag fatlaðra í Bolungarvík Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur formlega tæki sem félagið keypti nýverið. Að þessu sinni gaf Sjálfsbjörg Sjúkraþjálfuninni þrekhjól og cross trainer ( fjölþjálfi) og Heilsugæslan fékk ljósalampa fyrir húðsjúkdóma. Öll tæki til sjúkraþjálfunar sem notuð eru í Bolungarvík til endurhæfingar sjúkra einstaklinga eru gefin fyrir fé sem Sjálfsbjörg hefur safnað með fjáröflunum undanfarin ár. Jólabingó Sjálfsbjargar hefur verið ein helsta tekjulind félagsins um árabil en einnig leggjast félagar í Sjálfsbjörg í pönnukökubakstur á þorranum og bjóða bæjarbúum til kaups og fagna í leiðinni sólarkomu. Glögg má því sjá nauðsyn þess að eiga slíkt félag í bænum sem styður og styrkir við bakið á þeim sem á þurfta að halda og hlúða að mannúðarmálum.
Það var Þröstur Óskarsson framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Bolungarvíkur sem tók formlega við þessari höfðinglegu gjöf og þakkaði félögum í Sjálfsbjörg fyrir tækin og færði félaginu þakkarskjal frá stofnuninni. Einnig sagði Hulda Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri nokkur vel valin orð og Fanney Pálsdóttir sjúkraþjálfari gat varla leynt gleði sinni yfir þessari viðbót í safn tækja í Sjúkraþjálfunina. Nú stefnir Fanney á að koma á fót gigtarhópi en forsenda fyrir því að slíkt væri hægt var að eignast þessi tæki sem nú eru komin í hús. Tækin eru í stöðugri notkun og nýting þeirra er góð. Eldri borgarar notfæra sér aðstöðu í sjúkraþjálfun Bolungarvíkur og glöggt má sjá hversu liðugir þeir eru að jafnaði og trúlega má þakka það þeim tækjum sem Sjálfsbjörg hefur gefið gegnum árin.
Andvirði þessara tækja sem Sjálfsbjörg gaf að þessu sinnu eru um hálf milljón króna og það voru kampakátar konur úr stjórn Sjálfsbjörg, þær Anna Torfadóttir formaður, Margrét Ólafsdóttir og Birna Pálsdóttir, sem afhentu tækin í dag við hátíðlega athöfn.
Aflafréttir | 7. janúar 2010 15:28 | Ragna
Mokveiði var hjá bolvískum bátum í gær á þrettándanum enda sækja ...
Tilkynningar | 7. janúar 2010 15:03 |
Dyravarðanámskeið verður haldið á Ísafirði vikuna 11. til 14. janúar 2009. ...
Íţróttir | 4. janúar 2010 23:18 | Baldur
Föstudaginn 8. janúar næstkomandi byrjar nýtt þrek- og heilsuræktarnámskeið ...
Tilkynningar | 3. janúar 2010 15:07 |
Ljósið þitt og Heilsubærinn standa fyrir 10 vikna Yoga námskeiði sem hefst mánudaginn 11. ...
Menning og mannlíf | 3. janúar 2010 15:03 | Ragna
Reynir Skarsgård er myndasmiður góður og tekur kynstrin öll af myndum við hin og þessi ...
Fréttir | 30. desember 2009 15:48 | Ragna
Afskaplega fallegt veður er í Bolungarvík í dag. Frostið var um 8 gráður um ...
Fréttir | 30. desember 2009 15:29 | Ragna
Aftansöngur verður í Hólskirkju á morgun, Gamlársdag, kl. 18:00. Þakkað verður ...
Fréttir | 30. desember 2009 15:18 | Ragna
Snjóskaflinn iðaði af lífi er Víkari brá sér með myndavélina út ...
Fréttir | 29. desember 2009 18:48 | mbl.is
Skrifað hefur verið undir samning milli Jóns Auðunar Jónssonar hrl., skiptastjóra ...
Vísnahorn Víkara | 29. desember 2009 12:58 | Ragna
Gísli Kristjánsson orti um landnámskonuna Þuríði sundafyllir í kvæði sem ...
Fréttir | 28. desember 2009 16:54 | Frmst
Í janúar hefst svokallaður Grunnmenntaskóli hjá Fræðslumiðstöð ...
Fréttir | 28. desember 2009 15:59 | Ragna
Hagbarður Marinósson og Ragnhildur H. Benediktsdóttir eignuðust son í gær þann 27. ...
Menning og mannlíf | 28. desember 2009 15:34 | Baldur
Dagskrá Lífæðarinnar hófst kl. 13:00 í dag þegar útvarpsstjórinn ...
Fréttir | 28. desember 2009 12:36 | Ragna
Netmiðlill Bolvíkinga www.vikari.is hefur verið á andlitsbókinni eða Facebook um hríð. ...
Fréttir | 28. desember 2009 12:25 | Ragna
Það er jólalegt um að litast í Bolungarvík um þessar mundir enda hefur snjóað ...