Tilkynningar | 27.7.2010 | bolungarvik.is
Stuđningsfulltrúa vantar í grunnskólann
Grunnskóli Bolungarvíkur auglýsir 100% starf stuðningsfulltrúa við skólann. Um er að ræða afleysingarstarf til eins árs. Umsækjandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningsfulltrúi fylgir og styður fjölfatlaðan einstakling á tímabilinu 08:00 – 16:00 alla daga vikunnar og gætir velferðar hans í hvívetna meðan á skólatíma stendur. Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara og ekki síst við foreldra einstaklingsins.
Hæfnikröfur
Mikilvægt er að umsækjandi hafi til að bera jákvætt og gefandi viðmót, góða samskiptahæfni og áhuga á börnum. Æskilegt er að viðkomandi eigi að baki stuðningsfulltrúanám eða reynslu á sviði umönnunar.
Laun og launakjör
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir vinsamlegast skilið atvinnuumsókn á bæjarskrifstofu eða á netfang skólastjóra sem einnig veitir fúslega upplýsingar í gegnum tölvupóst: sossa@bolungarvík.is
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2010.
Fréttir | 7. september 2010 00:27 | Ragna
Þrjú börn hafa fæðst í Bolungarvík frá því í ...
Menning og mannlíf | 6. september 2010 23:47 |
Í vetur verður boðið upp á prjónakvöld í Einarshúsi annað hvert ...
Fréttir | 6. september 2010 21:01 |
Afli bolvískra báta var mjög góður í ágúst enda voru gæftir með besta ...
Menning og mannlíf | 6. september 2010 20:37 |
Krakkarnir í 1. bekk Grunnskóla Bolungarvíkur fóru í berjamó með Elínu ...
Íţróttir | 6. september 2010 20:10 |
BÍ/Bolungarvík vann sætan sigur á Víði úr Garði í 2. deild ...
Fréttir | 2. september 2010 22:49 |
Það hefur verið mikil aukning hjá Sigurði Bjarna Hjartarsyni á sjótaxanum Bjarnarnesi ...
Íţróttir | 2. september 2010 22:33 |
Sparisjóður Bolungarvíkur býður Bolvíkingum og öðrum ...
Fréttir | 2. september 2010 22:21 | bb.is
Fréttavefurinn bb.is greinir frá því að undirbúningsfélag að stofnun ...
Fréttir | 2. september 2010 22:18 |
Gamla nótaskipið Súlan EA liggur nú bryggju í Bolungarvík og tekur þar við ...
Tilkynningar | 1. september 2010 21:02 |
Eins og venja er hægt að bóka fasta tíma í íþróttasal Árbæjar. ...
Íţróttir | 1. september 2010 20:58 | UMFB.is
UMFB og KFÍ verða í samstarfi um að vera með meistaraflokk karla í körfubolta sem mun keppa ...
Fréttir | 1. september 2010 20:49 |
Vegagerðin hefur ákveðið að veita Bolungarvíkurkaupstað einnar milljón króna styrk ...
Íţróttir | 1. september 2010 20:27 |
Mánudaginn 6. september næstkomandi byrjar nýtt þrek- og heilsuræktarnámskeið í ...
Fréttir | 31. ágúst 2010 22:35 |
Bolvíski línubáturinn Sirrý ÍS-84 setti í kvöld nýtt heimsmet í ...
Tilkynningar | 31. ágúst 2010 22:15 | bolungarvik.is
Skólasetning Tónlistarskólans fer fram á morgun, miðvikudaginn 1. september kl. 18:00 í sal ...