Úrslitakvöld Sönglagakeppni Vestfjarða verður haldið næstkomandi föstudagskvöld, 4. júní, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar keppa fjórtán lög til úrslita sem valnefnd valdi úr ríflega 50 innsendum lögum. Lögin verða flutt af jafnmörgum flytjendum. Miðar á keppnina verða aðeins seldir í forsölu, en hún er hafin hjá Magnúsi Hávarðarsyni í síma 456-7055 eða 849-2006. Miðaverð er 5.900 kr. fyrir keppnina, smáréttaveitingar og dansleik sem haldinn verður í kjölfar keppninnar, þar sem stórhljómsveit keppninnar undir stjórn Hrólfs Vagnssonar, ásamt söngvurunum Benedikt Sigurðssyni og Birgi Olgeirs leikur fyrir dansi. Eins má gera ráð fyrir að einhverjir flytjendur keppninnar blandi sér í stuðið á ballinu. Kynnar kvöldsins verða Elfar Logi Hannesson og Guðný Sóley Kristinsdóttir og meðal fimm dómnefndarmanna er sjálfur Villi Valli.
Áhorfendur munu velja uppáhaldslag sitt í kosningu og mun það hljóta áhorfendaverðlaunin. Dómnefndin velur svo sigurlagið í lok kvöldsins. Strákarnir Við Pollinn sjá um allar veitingar og munu þeir bera gestum smáréttaveitingar í hléi. Borð verða dúkuð, með kertum og blómum. Athygli er vakin á snyrtilegum klæðnaði á bæði keppni og dansleik og að sætaframboð er takmarkað við 130-150 manns við borð.
Þess má geta að nokkrir þungavigtarmenn keppa til úrslita en þar á meðal eiga lagahöfundarnir Ingvi Þór Kormáksson, Trausti Bjarnason og Baldur Geirmundsson, úr BG og Ingibjörgu, lög í keppninni. Stórhljómsveit keppninnar hefur æft stíft að undanförnu undir stjórn Hrólfs Vagnssonar, tónlistarmanns í Bolungarvík, sem hefur sér til halds og trausts valið lið vestfirskra tónlistarmanna.
Þá munu meðal annarra Baldur Geirmunds og Magga Geirs, Heiða Ólafsdóttir, Heiða í Idol, og Böðvar Reynisson, Böddi í Dalton, flytja lög í úrslitakeppninni. Fyrirhugað var að úrslitakvöldin yrðu tvö, á Patreksfirði og Ísafirði, en þar sem mikil sjómannadagskrá er á Patreksfirði þessa helgi, reyndist ekki unnt að koma sönglagakeppninni þar að, að þessu sinni.
„Ég er viss um að á komandi árum muni mörg af þessum lögum síast inn í fólk, og ég veðja á að einhver þeirra eiga eftir að ná almennum vinsældum. Lögin sem koma út á geisladiski í sumar, eru í fjölbreyttum stíl og mjög skemmtileg, og textarnir jákvæðir og uppbyggilegir,“ segir Magnús Hávarðarson aðalskipuleggjandi keppninnar.
Magnús bendir á að nú gefist gott tilefni til að skella sér í helgarreisu til Ísafjarðar og sletta aðeins úr klaufunum. „Þetta verður flott sýning sem enginn má missa af“. Hótel Ísafjörður og Gamla gistihúsið á Ísafirði og Systrablokkin í Bolungarvík bjóða upp á gistitilboð í tilefni keppninnar.













