Víkari.is - Fréttavefur Bolvíkinga
Þú þarft Flash plugin til að sjá þennan banner!
Fréttir | 23.4.2012 22:34:04 |
Kit kat kjóll og FAIR TRADE!

Þá er komið að síðustu ferð bolvískra 10. bekkinga á erlenda grund í tengslum við Comenius samstarfsverkefni skólans. Að þessu sinni eru það þau Hermann Andri Smelt, Ingólfur Daði Guðvarðarson og Sigríður Magnea Jónsdóttir sem hafa lagt land undir fót og eru nú stödd í Luxemborg. Viðfangsefni verkefnisins er eins og við höfum áður sagt frá er sanngjörn viðskipti, FAIR TRADE, þar sem fjallað er um viðfangsefnið frá ólíkum hliðum. Að undanförnu hafa nemendur verið að fjalla um peninga og gildi þeirra, “Money and it´s value”. Eru peningar lykilatriði í samfélaginu? Getum verið mögulega verið án þeirra? Hvernig hafa viðskipti þróast? Hver eru lykilgildin í samfélaginu? Hvernig munu viðskiptahættir nemenda verða í framtíðinni? Munu peningar, mynt og seðlar, renna sitt skeið og rafræn viðskipti taka alveg yfir? Spurningum eins og þessum hafa nemendur verið að velta fyrir sér og munu þau Hermann, Sigríður og Ingólfur flytja fyrirlestur um sínar hugmyndir í Luxemborg. Nemendur áttu einnig að hanna fatnað/skrautmuni úr endurunnu efni og munu þeir taka þátt í tískusýningu þar sem framleiðslan verður sýnd. Sigríður munu sýna kjól sem skreyttur er með Kit kat bréfum og Hermann og Ingólfur sýna bindi og slaufu í sama stíl. Skólinn sem nemendur dvelja í í Luxemborg er um 1600 nemenda stúlknaskóli sem stýrt er af nunnum.

 


Næstu viðburðir
Í dag föstudagur, 24. maí 2013
Kjallarakeppni í Einarshúsi
Síðasta keppnin í vetur hefst kl. 22:40 eða um það bil
Í dag föstudagur, 24. maí 2013
Spilavist í Einarshúsi
Þriðja og síðasta kvöldið í vetur hefst kl. 21:00
föstudagur, 31. maí 2013
Þorskurinn 2013 - Tónlistarhátið í Einarshúsi
Þorskurinn 2013 verður haldin í bakgarði Einarshúss föstudaginn 31. maí næstkomandi og hefst hátíðin kl 18:00
Nýjustu myndirnar
Smelltu til að skoða Lífið við höfnina
Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.

Bolungarvík á BB.is
Fréttir á Bolungarvík.is
Fundargerðir á Bolungarvík.is
Aðsendar greinar
Smelltu til að skoða Við þökkum fyrir okkur
29.4.2013 14:52:40

Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...

Smelltu til að skoða Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina
26.4.2013 20:05:02

Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...

Myndbandið
Nýleg virkni