Nýr Hrólfur Einarsson ÍS kom til heimahafnar í Bolungarvík nú í morgun. Báturinn er í eigu útgerðarfélagsins Völusteins og kemur í stað eldri báts með sama nafn. Hrólfur Einarsson ÍS er 15 tonna bátur af gerðinni Cleopatra 40B og kemur frá Trefjum í Hafnarfirði og er systurskip Fríðu Dagmar ÍS sem kom til Bolungarvíkur í mars sl. Skipstjóri á Hrólfi Einarssyni ÍS er Ólafur Jens Daðason og er reiknað með að báturinn haldi til veiða á morgun.
Meðfylgjandi mynd var tekin af Hrólfi Einarssyni ÍS í Hafnarfjarðarhöfn um síðustu helgi.
Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...
Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...











.jpg)
