Víkari.is - Fréttavefur Bolvíkinga
Þú þarft Flash plugin til að sjá þennan banner!
Virkjum Víkara | 1.11.2011 22:32:41 | Trausti Salvar Kristjánsson

Ég heiti Trausti Salvar Kristjánsson, sonur Kristjáns Jónatanssonar og Þorbjargar Magnúsdóttur. Ég er fæddur þann 4. maí 1978, á Landsspítalanum í Reykjavík.

Í þessari tveggja setninga staðhæfingu felst uppljóstrun einhverrar þeirrar mestu skammar sem undirritaður hefur uppljóstrað á sinni tiltölulega stuttu ævi, sem er þó, líkt og þessi pistill mun leiða í ljós, uppfull af allskyns skömm. Skömmin er þess eðlis að í hvert skipti sem ég er spurður að því hvaðan ég sé, emjar mitt innra sjálf og engist um af stingandi sársauka og smán, líkt og hálfnakinn unglingsstrákur með holdris í kynjablönduðu skólasundi.

Skömmin er fráleitt sú að vera undan merkishjónum þeim er foreldar mínir eru. Annað eins sómafólk er varla til, nema þá helst afar mínir og ömmur. Skömmin er heldur ekki nafnið sem mér ...


Virkjum Víkara | 7.4.2010 | Sigurvin Hannibalsson

Sigurvin Hannibalsson hefur verið virkjaður til að skrifa pistil á Víkara. Hann er fæddur 17. febrúar árið 1937 í Þernuvík sem var innsti bærinn (jörðin) í Ögurhreppnum. Ljósmóðir hreppsins var frú Hildur Hjaltadóttir sem bjó á Hrafnabjörgum í Laugardal og þannig stóð á þennan dag að hún var einnig að fæða barn svo sækja varð ljóðmóðir í Reykjafjarðarhrepp sem er næsti bær fyrir innan Ögurhrepp. Bjó hún á Látrum í Mjóafirði og hét hún Hólmfríður Bergsveinsdóttir, hún var gift Þórarni Helgasyni bónda á Látrum en hann var áður ekkill. Giftusamlega tókst að koma báðum þessum nýju íbúum Ögurhrepps í heiminn. Hinn var Helgi Samúelsson en hann varð seinna skólabróðir Sigurvins í Bolungarvík í barnaskólanum og síðar fermdust þeir í ...


Virkjum Víkara | 13.2.2010 | Sigurður Eggertsson

Siðastliðið haust voru 30 ár liðin frá því við fluttum frá Bolungavík, vorum við þá búin að vera búsett í Víkinni í á áttunda ár.

 

Ég kom fyrst til Bolungavíkur vorið 1962, þá 13 ára gamall og var þar viðloðandi meira og minna fram að því að ég for að læra að smíða 17 ára gamall, á þessum árum var ég mest úti á sjó, einnig í beitningu og ýmsu öðru, svo var ég í skóla í Reykjanesinu. Ég réri með mörgum heiðursmönnum eins og t. d. Leifi Jónssyni, Guðmundi Halldórssyni, Pálma Sveins og Bjarna Sala. Seinasta sumarið var ég í vestfjarðafluttningunum með karli föður mínum, en hann var skipstjóri hjá ...


Smáauglýsingar

Smáauglýsingar á Víkari.is

Viltu kaupa/selja/leigja? Skráðu smáauglýsinguna þína á Víkari.is

BJARNABÚÐ

FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM- BARNAFATNAÐUR - KVENNFATNAÐUR - LEIKFÖNG - GJAFAVARA - OG. FL OG. FL. KVEÐJA BJARNABÚÐ EIN STÖK BÚÐ

Ótrúlegt úrval í Vélvirkjanum

Ótrúlegt úrval af vörum í verslun okkar að Aðalstræti 13-15. Verslunin er oft kölluð ótrúlega búðin. Vélvirkinn s/f verslun.

Herbergi til leigu?

18 ára reglusamur piltur óskar eftir herbergi til leigu í sumar. Hafið sammband við Arnar Pál í síma 894-0705

Sölufólk óskast...

.. til að selja/kynna mjög eftirsóknarvert næringarsúkkulaði. Nýtt í Evrópu. Einstakar vörur sem allir vilja kaupa sér aftur og aftur. 8643580 hanna@phlifsstill.is

Vantar íbúð/hús til leigu

5 manna fjölskylda óskar eftir að leiga 4-5 herbergja íbúð/hús í Bolungarvík. Reglusöm og reyklaus. Upplýsingar gefur Helgi í síma 8695145.

Eldra efni
Virkjum Víkara | 17.1.2010 | Selma Amalía Friðriksdóttir
Virkjum Víkara | 8.12.2009
Virkjum Víkara | 29.11.2009 | Þjóðólfur
Virkjum Víkara | 15.7.2009 | María Elísabet Jakobsdóttir
Virkjum Víkara | 16.6.2009 | Jón Eggert Víðisson
Virkjum Víkara | 26.5.2009 | Hallfríður Kristín Jónsdóttir
Virkjum Víkara | 10.5.2009 | Sigurborg Þórarinsdóttir
Virkjum Víkara | 27.4.2009 | Þröstur Ernir Viðarsson
Virkjum Víkara | 14.4.2009
Virkjum Víkara | 29.3.2009 | Ingunn Lára Magnúsdóttir
Virkjum Víkara | 15.2.2009
Virkjum Víkara | 21.12.2008
Virkjum Víkara | 19.11.2008
Virkjum Víkara | 4.11.2008
Virkjum Víkara | 19.10.2008
Virkjum Víkara | 3.10.2008
Næstu viðburðir
miðvikudagur, 22. maí 2013
Tónleikar dúettsins Funa í Kjallaranum
Dúettinn Funi er skipaður þeim Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Þau flytja lög af nýjum hljómdiski sem nefnist Flúr og inniheldur fallega íslenska þjóðlagatónlist. Aðgangseyrir er 1500 krónur.
föstudagur, 24. maí 2013
Kjallarakeppni í Einarshúsi
Síðasta keppnin í vetur hefst kl. 22:40 eða um það bil
föstudagur, 24. maí 2013
Spilavist í Einarshúsi
Þriðja og síðasta kvöldið í vetur hefst kl. 21:00
Nýjustu myndirnar
Smelltu til að skoða Lífið við höfnina
Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.

Bolungarvík á BB.is
Fréttir á Bolungarvík.is
Fundargerðir á Bolungarvík.is
Aðsendar greinar
Smelltu til að skoða Við þökkum fyrir okkur
29.4.2013 14:52:40

Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...

Smelltu til að skoða Kastaðu ekki atkvæði þínu á glæ - Kjóstu öfluga málsvara fyrir landsbyggðina
26.4.2013 20:05:02

Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...

Myndbandið
Nýleg virkni