
Nýfæddir Víkarar - Drengur Auðunsson

Á Jóladag, föstudaginn 25. desember, fæddist nýr Bolvíkingur á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði. Þar var um að ræða dreng sem var 53 cm á lengd og 3760 grömm að þyngd við fæðingu. Foreldrar drengsins eru þau Karen Arna Hannesdóttir og Auðunn Jóhann Elvarsson. Ljósmóðirin sem tók á móti drengnum var Sigrún Rósa Vilhjálmsdóttir. Frá þessu er greint á nýburasíðu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Veistu um nýfædda Víkara sem ættu heima á þessum vef? Ef svo er, máttu senda mynd og tilheyrandi upplýsingar á vikari@vikari.is

Hóf Íþróttamanns ársins í Bolungarvík 2019 var haldið í Félagsheimilinu sunnudaginn 12.janúar 2020.
Margir íþróttamenn fengu viðurkenningar og var það Mateusz Klóska sem fékk titilinn íþróttamaður ársins.
Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir tók eftirfarandi myndir.