
Nýfæddir Víkarar - Emma Gruz

Þriðjudaginn 7. mars, fæddist nýr Bolvíkingur á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þar var um að ræða stúlku sem var 49 cm á lengd og 3370 grömm að þyngd við fæðingu. Foreldrar stúlkunnar eru þau Paulina Sabina Rudzinska og Mateusz Gruz. Ljósmóðirin sem tók á móti stúlkunni var Erla Rún Sigurjónsdóttir. Kristín Greta Bjarnadóttir, ljósmóðurnemi, var einnig viðstödd fæðinguna. Frá þessu er greint á nýburasíðu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Veistu um nýfædda Víkara sem ættu heima á þessum vef? Ef svo er, máttu senda mynd og tilheyrandi upplýsingar á vikari@vikari.is

Snjóflóðavarnargarðarnir Vörður og Vaki í Bolungarvík voru vígðir laugardaginn 20. september.