
Nýfæddir Víkarar - Drengur Bragason

Miðvikudaginn 2. janúar 2019, fæddist nýr Bolvíkingur á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þar var um að ræða dreng sem var 52 cm á lengd og 3980 grömm að þyngd við fæðingu. Drengurinn er fyrsta barn ársins er fæðist á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Foreldrar drengsins eru þau Natalia Katarzyna Pitala og Bragi Helgason. Ljósmóðirin sem tók á móti drengnum var Elisabeth J. Zitterbart. Frá þessu er greint á nýburasíðu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Veistu um nýfædda Víkara sem ættu heima á þessum vef? Ef svo er, máttu senda mynd og tilheyrandi upplýsingar á vikari@vikari.is

Hóf Íþróttamanns ársins í Bolungarvík 2019 var haldið í Félagsheimilinu sunnudaginn 12.janúar 2020.
Margir íþróttamenn fengu viðurkenningar og var það Mateusz Klóska sem fékk titilinn íþróttamaður ársins.
Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir tók eftirfarandi myndir.