Meistaramót Golfklúbbs Bolungarvíkur fór fram á Syðridalsvelli í síðustu viku. Elías Jónsson varð sigurvegari í karlaflokki en Valdís Hrólfsdóttir sigraði í kvennaflokki. Þá sigraði Daði Arnarsson í 2. flokki karla og Guðmundur Einarsson stóð uppi sem sigurvegari í öldungaflokki.
Kylfingar í 1. flokki karla léku 54 holur en eins og áður segir lék Elías Jónsson best allra eða á 221 höggi. Næstur kom Runólfur Kristinn Pétursson með 229 högg og Janusz Pawel Duszak varð þriðji með 235 högg.
Í öðrum flokkum voru leiknar 36 holur og í kvennaflokki var Valdís Hrólfsdóttir í 1. sæti með 203 högg, Daðey Steinunn Einarsdóttir varð önnur með 205 högg og Eygló Harðardóttir varð þriðja með 212 högg.
Það var mikil barátta um sigurinn í 2. flokki karla en Daði Arnarsson stóð að lokum uppi sem sigurvegari en hann lék holurnar 36 á 165 höggum eða einu höggi betur en Ingólfur Daði Guðvarðarson sem varð í 2. sæti með 166 högg. Ingólfur Ívar Hallgrímsson var svo í 3. sætinu með 173 högg.
Guðmudnur Einarsson sigraði örugglega í öldungaflokki en hann lék á 201 höggi en Finnbogi Jakobsson varð í 2. sæti með 232 högg og Kjartan Bjarnason varð í því þriðja með 238 högg.
Alls tóku rúmlega 20 kylfingar þátt í Meistaramóti Golfklúbbs Bolungarvíkur að þessu sinni og var Unnsteinn Sigurjónsson formaður klúbbsins ánægður mætinguna.
Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...
Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...











.jpg)
