Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.
Feðgarnir Björn Sveinsson og Friðrik Rósinkar Björnsson ásamt Hálfdáni Guðröðarsyni lönduðu þremur myndarlegum hárkörlum í Bolungarvíkurhöfn 30. mars 2013.
Páskaeggjamót sunddeildar UMFB var haldið í Sundlaug Bolungarvíkur 23. mars 2013.
Fréttaritari Víkara var á staðnum og tók myndir af stundtökum barnanna.
Bolvísk börn maska á bolludaginn en í því felst að þau ganga grímuklædd í hús og fá gefins sælgæti og annað góðgæti fyrir söng eða góða sögu.
Ljósmyndari Víkara náðu þessum myndum af bolvískum möskum á bolludagskvöld.
Eldri borgarar í Bolungarvík héldu þorrablót sitt 1. febrúar síðastliðinn í Safnaðarheimilinu í Bolungarvík.
Ljósmyndari Víkara var svo heppinn að fá að samgleðjast með eldri borgurum og tók þessar myndir við það tilefni.
Nemendur Grunnskóla Bolungarvíkur sýndu sínar bestu hliðar á árshátíð skólans í Félagsheimili Bolungarvíkur 7. febrúar 2013.
Ljómyndari Víkara mætti á árshátíðina eins og sjá má í þessu myndasafni
Jólin voru kvödd með þrettándagleði á Hreggnasavelli í Bolungarvík 6. janúar 2013. Ljósmyndarar Víkara voru með myndavélina á lofti og sjá má afrakstur myndatökunnar hér. Myndirnar tóku Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir og Baldur Smári Einarsson
Innanfélagsmót sunddeildar UMFB var haldið í sundlaug Bolungarvíkur laugardaginn 10. nóvember.
Dagurinn 8. nóvember 2012 var tileinkaður báráttunni gegn einelti. Af því tilefni stóð Grunnskóli Bolungarvíkur, ásamt leikskólanum Glaðheimum og dagmæðrum í Hrafnakletti, fyrir dagskrá við Félagsheimili Bolungarvíkur.
Íþróttahátíð nemenda í 8.-10. bekk grunnskóla á norðanverðum Vestfjörðum var haldin í Íþróttamiðstöðinni Árbæ og Grunnskóla Bolungarvíkur.
Fréttaritari Víkara brá undir sig betri fætinum í gær, miðvikudaginn 19. september, þegar Bolungarvík skartaði sínu fegursta í haustveðrinu.
Fjárréttir voru í Bolungarvík laugardaginn 15. september - réttað var bæði í Syðridal og í Minnihlíð.
Opið hús var í Skemman líkamsrækt laugardaginn 1. september kl. 16:00-18:00. Fjöldi fólks kom og skoðaði þá aðstöðu sem hjónin Jónas Leifur og Ragnheiður hafa uppá að bjóða í Skemmunni.
Opið hús var í Skemman líkamsrækt í dag, laugardaginn 1. september kl. 16:00-18:00. Fjöldi fólks kom og skoðaði þær aðstæður sem hjónin Jónas Leifur og Ragnheiður hafa uppá að bjóða í Skemmunni.
Skilti með hinu forna kvæði Völuspá var vígt í Bolungarvík 28. júlí 2012. Eftir vígsluna var því þinglýst að fornum sið að kvæðið teldist vera bolvískt að ætt og uppruna.
Lokahóf Leikjanámskeiðs Benna Sig og Heilsubæjarins var haldið í porti Grunnskólans í dag, föstudaginn 27.júlí.
Bæði krakkarnir, foreldrar og forsvarsmenn námskeiðsins skemmtu sér hið besta.
Krakkarnir á Ævintýranámskeiði Benna Sig og Heilsubæjarins vinna hörðum höndum að smíði kofa við Aðalstrætið í Bolungarvík. Ljósmyndari Víkari.is tók þessar myndir af byggingarframkvæmdum yngstu kynslóðarinnar í Bolungarvík.
Bolvíkingar skreyttu hús sín í tilefni af Markaðsdeginum 2012. Efri bærinn var í rauðu, neðri bærinn í bláu og fyrirtækin notuðu græna litinn til skreytinga. Hér má sjá myndir af nokkrum vel skreyttum húsum í Bolungarvík.
Fréttaritari víara fór í göngutúr uppí Bolla sem er fyrir innan skíðalyftu okkar Bolvíkinga.
Nemendur 10. bekkjar Grunnskóla Bolungarvíkur fögnuðu próflokum með glæsibrag vorið 2012.
Myndirnar tók Sigrún Bragadóttir
Börnin á leikskólanum Glaðheimar héldu myndlistasýningu í Ráðhúsi Bolungarvíkur vikuna 7.-11. maí 2012. Ljósmyndari Víkara var á svæðinu er börnin komu og opnuðu sýninguna, við opnunina sungu þau nokkur lög og fóru síðan í skrúðgöngu um miðbæ bæjarins.
Laugardaginn 12. maí 2012 var hreinsunarátak í Bolungarvík. Farið var yfir bæjarlandið og tínt bréfarusl, plast, dósir og annað smálegt sem lent hafði á röngum stað í bænum!
Eftir tveggja tíma hreinsunartörn safnaðist fólk saman við á tjaldsvæðinu og grillað.
Leikfélag Bolungarvíkur frumsýndi leikritið Að eilífu eftir Árna Ibsen laugardaginn 10. mars. Leikstjóri verksins er Lilja Nótt Þórarinsdóttir.
Fullt var út úr dyrum og ríkti mikil spenna á meðal gesta og þátttakanda í sýningunni fyrir fyrstu frumsýningu Leikfélagsins í 17. ár.
Sandra Borg Bjarnadóttir og Sigríður Línberg Runólfsdóttir voru með myndavélarnar á lofti á frumsýningunni.
Fréttaritari víkara var mikið á ferðinni í síðustu viku um nágrenni Bolungarvíkur. Myndavélin var ekki langt undan. Njótið
Leikfélag Bolungarvíkur kynnir leikritið "Að eilífu" eftir Árna Ibsen. Leikstjóri verksins er Lilja Nótt Þórarinsdóttir. Mndirnar eru teknar á æfingum leikfélagsins á verkinu. Það verður spennandi að sjá verkið fullbúið á sviði.
Sýningar fara fram í Félagsheimili Bolungarvíkur og er frumsýning 10. mars 2012
Íþróttamaður ársins 2011 í Bolungarvík var útnefndur í glæsilegu hófi í Félagsheimili Bolungarvíkur 24. febrúar 2012. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri
Bolvísku börnin eru einstaklega duglega að maska og klæðast þá frumlegum gervum og ganga hús úr húsi og fá glaðning að launum fyrir góða sögu eða fagran söng. Það var einnig glatt á hjalla hjá yngstu kynslóðinni á öskudaginn. Meðfylgjandi myndir voru teknar á möskum og öskudag í Bolungarvík.
Laugardaginn 11. febrúar var þorrablót Bolvíkingafélagsins í Reykjavík haldið í Turninum í Kópavogi. Uppselt var á blótið og skemmtu Bolvíkingar og gestir þeirra sér einstaklega vel.
Árshátíð Grunnskóla Bolungarvíkur var haldin í Félagsheimili Bolungarvíkur 9. febrúar 2012. Árshátíðin var einstaklega vel heppnuð og mátti sjá gleðina skína út úr hverju andliti í salnum.
Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur um allt land 6. febrúar.
Leikskólabörn í Bolungarvík héldu uppá daginn með því að fara, ásamt leikskólakennurum, í göngutúr með viðkomu hjá bæjarstjóranum og eldri borgurum þar sem þau sungu nokkur lög.
Aðfaranótt 26. janúar 2012 var óviðri með mikilli snjókomu í Bolungarvík. Gríðarlegt magn af snjó hafði kyngt niður og þegar veðrinu slotaði drifu bæjarbúar sig út til að moka frá eða leika sér í snjónum. Ljósmyndari Víkara tók stuttan hring um neðri bæinn við það tækifæri og tók þá þessar myndir.
Þorrablótið í Bolungarvík var haldið í Félagsheimili Bolungarvíkur 21. janúar 2012. Ljósmyndari Víkari.is fylgdist með undirbúningi blótsins eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Ljósin á jólatré Bolvíkinga voru tendruð 4. desember sem 2. sunnudag í aðventu. Ljósmyndari Víkari.is tók meðfylgjandi myndir við það tækifæri.
Snjóflóðavarnargarðarnir í Traðarhyrnu eru mikið mannvirki en vinnu við þá á að ljúka sumarið 2012.
Baldur Smári Einarsson tók meðfylgjandi myndir í haust og sumar sem leið.
130 ára afmæli skólahalds í Bolungarvík var fagnað í Grunnskóla Bolungarvíkur 26. október 2011. Mikið var um dýrðir í skólanum og gestum boðið upp á kaffi og kökur. Baldur Smári Einarsson tók meðfylgjandi myndir við það tækifæri. Tvær síðustu myndirnar eru þó teknar af Halldóri Sveinbjörnssyni.
Myndir sem teknar voru við höfnina í Bolungarvík í september 2011 en sá mánuður var einn sá gjöfulasti í sögu hafnarinnar.
Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson
Myndir frá því þegar krakkarnir á Ævintýranámskeiði Benna Sig og Heilsubæjarins heimsóttu álfkonuna í álfahöllinni í Traðarhyrnu.
Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson
Það var líf og fjör á vel heppnuðum Markaðsdegi í Bolungarvíkur 2. júlí 2011. Veðrið lék við Bolvíkinga og gesti þeirra og skein gleðin út úr hverju andliti.
Baldur Smári Einarsson tók meðfylgjandi myndir.
Hátíðarhöld á þjóðhátíðardegi Íslandinga voru með hefðbundnu sniði í Bolungarvík 17. júní 2011. Köld norðanáttin hafði sín áhrif á hátíðarhöldin sem flutt voru inn í hlýtt Félagsheimilið.
Meðfylgjandi myndir tók Baldur Smári Einarsson
Leikhópurinn Lotta sýndi verkið um Mjallhvíti og dvergana sjö á hátíðarsvæðinu á bak við Grunnskóla Bolungarvíkur 14. júní 2011. Fremur kalt var í veðri en leikendur og áhorfendur létu það ekki á sig fá og skemmtu sér konunglega.
Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson
Myndir frá skemmtisiglinu bolvískra báta og hátíðarhöldum við höfnina á Sjómannadaginn 2011.
Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson.
Myndir frá tónlistarhátíðinni Þorskinum 2011 sem haldinn var í bakgarði Einarshússins 4. júní 2011.
Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson.
Ljósmyndari Víkara heimsótti leikskólann Glaðheima þegar börnin héldu upp á Dag leikskólans þann 6. febrúar
Andri Rúnar Bjarnason var kjörinn íþróttamaður ársins 2010 í veglegu lokahófi í Safnaðarheimilinu laugardaginn 5. febrúar.
Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir.
Í lok maí 2010 var haldin sýning á handverki því sem unnið hefur verið í föndri eldri borgara í Bolungarvík. Margt fallegt handverk var þar til sýnis og leyna sér ekki listrænir hæfileikar eldri kynslóðarinnar.
Margt var um manni á þorrablótinu í Bolungarvík sem haldið var í hinu glæsilega og nýuppgerða Félagsheimili. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir til myndirnar.
Opið hús var í Félagsheimili Bolungarvíkur 15. janúar 2011 þar sem gestum gafst færi á að kynna sér félagsheimilið eftir gagngerar endurbætur.
Myndir frá hjólatúr Kristínar Ketilsdóttur um Kína um síðustu áramót. Hjólatúrinn var ævintýri líkastur, 1.300 km langur, frá Leshan í Sichuan til Dali í Yunnan. Sjón er sögu ríkari!
Bolungarvíkurgöng voru opnuð 25. september 2010 af Ögmundi Jónassyni, samgönguráðherra. Ljósmyndari Víkari.is var með myndavélina á lofti þegar klippt var á borðann. Einnig eru í myndasafninu myndir frá því þegar hlaupandi, gangandi, og hjólandi vegfarendum gafst kostur á að prufa göngun áður en þau voru tekin formlega í notkun.
Svipmyndir frá 3. deild sveitakeppni GSÍ þar sem Golfklúbbur Bolungarvíkur hafnaði í 4. sæti. Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson á Tungudalsvelli dagana 13. - 15. ágúst 2010
Rauðir og bláir runnu saman í eina fylkingu og sameinuðust við krossgötur á nýafstaðinni Markaðshelgi. Víkari sig ekki vanta með myndavélina og tók myndir af því sem fyrir augu bar.
Íþróttálfurinn sótti Bolvíkinga heim 23. júlí 2010 og tók þátt í skemmtun á vegum Ævintýranámskeiðs Benna Sig og Heilsubæjarins. Ljósamyndari Víkara mætti á staðinn og tók meðfylgjandi myndir.
Krakkarnir sem eru á Ævintýranámskeiði Benna Sig og Heilsubæjarins í Bolungarvík hafa byggt upp álfabyggð á mótum Aðalstrætis og Brimbrjótsgötu. Ljósmyndari Víkara fylgdist með þegar málarameistarar framtíðarinnar voru að störfum.
Bolvíkingar héldu sinn árlega hreinsunardag 8. maí síðastliðinn. Um 50 manns tóku að þessu sinni þátt í tiltektinni og var öllum boðið í grillveislu að henni lokinni.
Ljósmyndari Víkari.is tók meðfylgjandi myndir við það tækifæri.
Þrír sérhannaðir sjóstangveiðibátar komu til Bolungarvíkur í gærkvöldi. Bátarnir eru í eigu Víkurbáta ehf sem er félag í eigu Hauks Vagnsonar. Fjölmenni tók á móti bátunum þegar þeir komu í heimhöfn í gærkvöldi og var ljósmyndari Víkari.is þar á meðal.
Verkalýðs - og sjómannafélag Bolungarvíkur bauð Bolvíkingum í kaffi á fyrsta maí í safnaðarheimilið. Víkari lét sig ekki vanta og tók meðfylgjandi myndir.
Myndir af bátum í Bolungarvíkurhöfn.
Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson í mars og apríl 2010.
Á sumardaginn fyrsta 22. apríl sl. tóku um 40 manns þátt í Bænagöngu í Bolungarvík. Í bænagöngunni var farið um bæinn og beðið m.a. fyrir bæjarbúum og atvinnulífi í Bolungarvík.
Nemendur í 1. og 2. bekk heimsóttu fiskvinnslu Jakobs Valgeirs föstudaginn 19. mars og fengu eina öskju af þorshnökkum með sér heim.
Kvenfélagskonur buðu eldri borgurum til árshátíðar. Víkari brá sér á fagnaðinn og tók meðfylgjandi myndir
Brakandi sól var í Bolungarvík í dag 8. febrúar. Víkari brá sér með myndavélina í göngutúr um bæinn
Þorrablót Bolvíkingafélagsins var haldið í Reykjavík 30. janúar 2010. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir tók meðfylgjandi myndir
Árshátið Grunnskólans í Bolungarvík var haldin í Árbæ 28. janúar 2010. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir myndaði sem mest hún mátti
Karaokykeppni Lífæðarinnar fór fram á Vaxon 8. janúar sl. Íris Sveinsdóttir tók meðfylgjandi myndir.
Mikið var um dýrðir á þorrablótinu í Bolungarvík 23. janúar 2010. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir smellti af sem mest hún mátti og festi stemninguna á filmu
Afskaplega fallegt veður er í Bolungarvík í dag 29. desember 2009. Frostið var um 8 gráður um þrjú leitið og kuldaboli beit í kinn. Víkari brá sér um bæinn með myndavélina og tók meðfylgjandi myndir.
Mannlífið í Bolungarvík er margbreytilegt. Víkari brá sér út með myndavélina og smellti af í gríð og erg.
Ragnar Högni Guðmundsson er myndasmiður góður. Hann var með myndavélina meðferðis er slegið var í gegn í Bolungarvíkurgöngum
Myndir af ís í Bolungarvíkurhöfn árið 1968 eru úr myndasafni Hálfdáns Óskarssonar
Bolvískir grunnskólanemar héldur Íþróttahátíð með stæl. Myndirnar tók Ragnar Högni Guðmundsson
Víkari brá sér á hátiðarhöldin í Bolungarvík í gær á 17. júní og smellti af eins oft og þurfa þótti.
Leikskólakrakkar fóru út að borða í tilefni af útskriftinni sinni. Víkari var á staðnum og tók myndir er þau gæddu sér á hamborgurum og fleira góðgæti
Eldri borgarar í Bolungarvík héldur sýningu á handavinnu sinni á kirkjudegi eldri borgara 21. maí 2009
Fjölmargir lögðu leið sína til að fagna opnun Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum í Bolungarvík
Sigurjón Vídalín jarðfræðingur starfar í Bolungarvíkurgöngum. Hann er nokkuð liðtækur ljósmyndari og leyfði lesendum Víkara að gægjast í myndaalbúmið sitt
Frambjóðendur allra flokka í Norðvesturkjördæmi gafst kostur á að mæta á framboðsfund í Einarshúsi síðasta vetrardag
Víkari brá sér á höfnina í blíðskaparveðri og fylgdist með beitningafólki við störf
Rúnar Arnarson fór á kjördæmamót í grunnskólaskák sem haldið var á Suðureyri. Hann smellti myndum af sigursælum keppendum frá Bolungarvík
Allsherjar snyrting fór fram á rollunum hans Finnboga Bernódussonar í fjárhúsunum í Meirihlíð og fylgdist Víkari grannt með
Mikið og öflugt íþróttalíf er í íþróttamiðstöðinni Árbæ í Bolungarvík og iðar hún af lífi hvern dag. Er Víkari brá sér í Árbæ seinnipartinn í dag til að mynda það sem fyrir augu bar mátti sjá heilbrigðar sálir í hraustum líkama taka á, spenna og brenna kaloríum sem mest þær máttu.
Mikið líf og fjör var á þorrablóti Bolvíkingafélagsins sem haldið var 7. mars sl. Tala myndir Rósu Sigríðar Ásgeirsdóttur sínu máli
Snjónum kyngir niður í Bolungarvíkinni í dag 2. mars og 50 sm jafnfallinn snjór umlykur byggðina.
Michal Kubiš jarðfræðingur hjá slóveska fyrirtækinu Marti Contractors hefur leyft lesendum Víkara að glugga í myndasafnið sitt
Michal Kubiš jarðfræðingur kemur frá Slóvakíu og hann vinnur við jarðgangagerðina. Hann er fyrirtaksmyndasmiður og tók meðfylgjandi myndir á jarðgangasvæðinu
Undanfarnar vikur og mánuði hefur áhugafólk um bætta aðstöðu til heilsuræktar í Bolungarvík fært íþróttamiðstöðinni ýmis tæki og tól sem bæta til muna tækjakost þann sem fyrir er. Víkari var undir yfir og allt um kring á staðnum og tók meðfylgjandi myndir
Víkari brá sér í peysufötin og smellti myndum af því sem fyrir augu bar á þorrablótinu árið 2009
Víkari smellti af myndum er konur komu með trogin í Íþróttahúsið á laugardaginn 24. janúar 2009
Hálfdán Óskarsson fór með myndavélina á áramótabrennuna á gamla flugvellinum og smellti af flugeldasýningunni.
Það var fjölskrúðugt og margbreytilegt mannlífið í Bolungarvík á Þorláksmessu er bæjarbúar voru að leggja síðustu hönd á jólaundirbúninginn. Víða mátti sjá skælbrosandi andlit í búðunum og á vinnustöðum vítt og breytt um bæinn. Víkari brá undir sig betri fætinum og tók myndir af þvi sem fyrir augum bar.
Víkari fór í sína vikulegu eftirlitsferð á framkvæmdasvæðið við Ós og tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir myndir af því sem fyrir augu bar
Jólatónleikar Karlakórsins Ernis og Óskar Péturssonar voru haldnir í safnaðarheimilinu að kvöldi 15. desember 2008. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir tók meðfylgjandi myndir
Mikið var um dýrðir á fagnaði Heilagrar Barböru sem haldinn var á framkvæmdasvæði Ósafls fimmtudaginn 4. desember. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir og katólski presturinn Piotr Gardon fluttu stuttar hugvekjur og blessuðu vinnuna við jarðgöngin. Einar Hrafn Hjálmarsson tók meðfylgjandi myndir.
Vinna á framkvæmdasvæði við Ós gengur samkvæmt væntingum. Myndirnar segja meira en mörg orð
Félagsheimili Bolungarvíkur gengur nú í gengum miklar endurbætur. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir tók myndir af framkvæmdum
Kuno Reichmuth starfsmaður Marti Contractors LTD leyfði lesendum Víkara að glugga í myndasafnið sitt
Setning Norrænu bókasafnavikunnar fór fram á Bókasafni Bolungarvíkur í gær 10.nóvember. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Víkari fór sína vikulegu ferð á jarðgangasvæðið í dag og tók meðfylgjandi myndir
Alla fimmtudaga er opið hús í handverkshúsinu Drymlu. Þar er hægt að koma með handavinnuna sína og hitta handverkskonur. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir heimsótti framkvæmdasvæðið við Ós í dag 30. október og tók myndir af því sem fyrir augu bar.
Myndir voru teknar í vikulegri heimsókn á jarðgangasvæðinu við Ós. Myndirnar tóku Ragna Jóhanna Magnúsdóttir og Einar Hjálmarsson
Mikið líf og fjör var á árlegu íþróttahátið grunnskólans. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir tók meðfylgjandi myndir
Vinna við Brimbrjótinn stendur nú sem hæst. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir 9. okt. 2008
Búið var að sprengja 285 metra Bolungarvíkurmegin og 85 metra Hnífsdalsmegin fimmtudaginn 9. október 2008
Ægir konungur frussaði hinni ólgandi dröfn með látum að landi í dag. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir tók myndir af ógnarkraftinum sem býr í sjónum
Fest var á filmu það sem fyrir augum bar á framkvæmdasvæði Óshlíðarganga
Grunnskólabörn í 7. til 10. bekk í Bolungarvík brutu upp hversdagsleikann í síðustu viku og skelltu sér í leikhús. Það var leiksýningin Pétur og Einar sem varð fyrir valinu að þessu sinni og fjölmenntu börnin í Einarshús.
Félagsheimilið á staðnum er í alsherjar andlitslyftingu. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir 16 september 2008
Ljósmyndari Víkara bókaði flugferð með Andra Jónssyni á einshreyfils tveggja sæta Cessnu og myndaði það sem fyrir augum bar
Sólarlagið er engu líkt í nágrenni Bolungarvíkur. Ljósmyndari Víkara var á ferðinni eitt kvöldið er sólin var í þann veginn að setjast við sjóndeildarhring
Vestfjarðamótið var haldið um helgina í blíðskaparveðri. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir mundaði myndavélina sem aldrei fyrr
Kveikt var í húsum við Dísarland í kvöld. Ljósmyndari Víkara var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir
Kveik var í húsi í Dísarlandi þann 22. júlí 2008. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir hafði myndavélina meðferðis og smellti af.
Ósvör er eitt helsta stolt Bolvíkinga og hana sækja margir ferðamenn heim ár hvert. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir tók myndir í Ósvör á blíðviðrisdegi.
Mikið líf og fjör hefur verið á ævintýra-og leiknámskeiði í Bolungarvík í sumar. Myndirnar tók Anna Ingrún Ingimarsdóttir
Fegurð sólarlagsins er einstök og heilllandi í nágrenni Bolungarvíkur. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir tók myndirnar sumarið 2008
Vinna við stálþil á brimbrjót er í fullum gangi. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Framkvæmdir við varnargarð í hlíðum Traðarhyrnu er hafin og vinna nú stórvirkar vinnuvélar við að grafa í fjallinu. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir 16. júlí 2008
Þeir voru fisknir feðgarnir sem renndur færinu við Brimbrjótinn. Jens Þór Sigurðsson og Kristján Uni Jensson fengu þann stóra er Ragna Jóhanna Magnúsdóttir fréttaritari Víkara átti leið um hafnarsvæðið
Mikið var að gera hjá krökkunum á ævintýra - og leikjanámskeiði hjá Benna Sig og unnið var hörðum höndum að byggingu stórhýsa í Bolungarvík á dögunum. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Óhlíðin var hlaupin í 16 sinn í svokallaða Óshlíðarhlaupinu. Veður var fremur kallt og vindurinn napur enda hitinn einungis 4 gráður.
Kaupmannasamtök Íslands veittu þrjá styrki í Einarshúsi þann 28. júní til verkefna er varða varðveislu húsa og minja sem tengjast verslunarsögu landsins og voru myndir teknar við athöfnina.
Kraftur í kringum Ísland kom við í Bolungarvík á leið sinni um landið til að safna fyrir Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir var ekki langt undan með myndavélina og tók meðfylgjandi myndir
Fjölskyldudagur var haldinn hjá starfsmannafélagi Jakobs Valgeirs föstudaginn 13. júní 2008. Jenný Hólmsteinsdóttir tók meðfylgjandi myndir.
Mikið var um dýrðir á 17. júní í Bolungarvík og fjölmargir komu til að fylgjast með hátíðarhöldunum. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir.
Mikil framkvæmdagleði ríkir í Bolungarvík um þessar mundir. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir á fallegum sumardegi sem bar upp á föstudaginn 13. júní árið 2008
Guðmundur Ragnarsson tók myndir af ferð nemenda 8. bekkjar Grunnskóla Bolungarvíkur sem farin var nýlega. Þar sést krakkahópurinn frá sjónarhorni björgunarsveitarmanns
Rúmlega 60 manns tóku þátt í Kvennahlaupinu 2008. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir hafði myndavélina meðferðis og tók meðfylgjandi myndir
Krakkarnir í 6. bekk í Grunnskóla Bolungarvíkur gerðu sér glaðan dag í lok skólaársins og fóru í ferðalag. Myndir tók Daðey Einarsdóttir
Krakkarnir í 8. bekk í Grunnskóla Bolungarvíkur brugðu sér í ævintýrasiglingu að Hvassaleiti á Stigahlíð . Myndir tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Nemendur í Tónlistarskóla Bolungarvíkur gegnu fylltu liði um bæinn í síðustu viku og fögnuðu skólalokum. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Grásleppuvertíðin hjá bolvískum bátum hefur verið góð í ár. Bátsverjarnir á Þóreyju HU tóku myndavélina með sér í róður á dögunum og má hér sjá afraksturinn.
110 ára afmælis Einars Guðfinnssonar var minnst í Einarshúsi þann 17 maí 2008. Bæjarstjórn bauð Bolvíkingum til kaffisamsætis af því tilefni og tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir myndir á afmælinu.
Traðarland brennur á góðviðriskvöldi í Bolungarvík. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir tók myndirnar í hita leiksins, fimmtudagskvöldið 8. maí 2008
Íslandsmótið í skólaskák fór fram í Grunnskólanum í Bolungarvík dagana 24 til 27 apríl sl. Þar öttu kappi einir bestu skáksnillingar landsins og báru fyrir sig Sikileyjarvörn ef á þurfti að halda við að skáka andstæðinginn. Ragna Jóhanna Magnúsdóttir og Daðey S. Einarsdóttir tóku meðfylgjandi myndir á mótinu
Myndir frá heimsókn Skákskóla Íslands til Bolungarvíkur í lok 27. mars 2008. Myndirnar tók Rúnar Arnarson.
Myndir sem sýna vinnu við endurbætur á Félagsheimili Bolungarvíkur. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir 27. mars 2008.
Myndir frá Kútmagakvöldi Lionsklúbbs Bolungarvíkur sem haldið var í Einarshúsi 16. febrúar 2008. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Myndir frá kjöri íþróttamanns ársins árið 2007 í Bolungarvík. Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson
Myndir frá jólaballi kvenfélagsins sem haldið var á sal Grunnskóla Bolungarvíkur 29. desember 2007. Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson
Myndir frá Þorrablóti Bolvíkingafélagsins sem haldið var 2. febrúar 2008. Veislustjóri var Ingþór Karlsson og ræðumaður kvöldsins var Elín Gunnarsdóttir. Myndirnar tók Heiða Jóna Hauksdóttir
Myndir frá möskum í Bolungarvík árið 2008. Myndirnar tóku Baldur Smári Einarsson og Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Myndir frá árshátíð eldri borgara sem haldin var í Einarshúsi 29. september 2007. Myndirnar tók Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Myndir frá því þegar kveikt á jólatré Bolvíkinga við Félagsheimili Bolungarvíkur 1. desember 2007. Myndirnar tók Baldur Smári Einarsson
Myndir frá árshátíð starfsmanna Bolungarvíkurkaupstaðar sem haldin var laugardagskvöldið 17. nóvember 2007 í Félagsheimili Bolungarvíkur. Myndirnar tók Þorsteinn Haukur.
Myndir frá 30 ára afmælishátíð Bolungarvíkurkaupstaðar sem haldin var í Íþróttamiðstöðinni Árbæ 10. apríl 2004.
Myndir frá Þorrablóti Bolvíkingafélagsins sem haldið var í Reykjavík 7. febrúar 2006. Myndirnar tók Hafþór Gunnarsson.
Myndir frá Bolungarvík sem nota má sem skjámyndir. Myndirnar eru í stærðinni 1500 x 1000.
Í dag föstudagur, 24. maí 2013
Kjallarakeppni í Einarshúsi
Síðasta keppnin í vetur hefst kl. 22:40 eða um það bil
Í dag föstudagur, 24. maí 2013
Spilavist í Einarshúsi
Þriðja og síðasta kvöldið í vetur hefst kl. 21:00
laugardagur, 25. maí 2013
Hreinsum bæinn
Bolvíkingum er boðið að taka þátt í hreinsunarátaki laugardaginn 25. maí kl. 9:30 - 12:00.
Grillað verður við Sundlaugina að hreinsun lokinni eða kl. 13:15.
Það er mikið líf við höfnina í Bolungarvík þessa dagana enda er vorið komið hjá trillukörlunum í Víkinni. Ljósmyndari Víkara myndaði lífið við höfnina í liðinni viku.
29.4.2013 14:52:40
Nú við lok kosninga er okkur efst í huga þakklæti til þeirra sem treystu okkur til þess að starfa í sína þágu, að heill samfélagsins og ekki síst að hagsmunamálum ...
26.4.2013 20:05:02
Landsbyggðarflokkurinn er tveggja mánaða gamall um þessar mundir, en hugmyndin að stofnun hans kviknaði fyrir tæpum þremur mánuðum. Á þessum stutta tíma hefur tekist, með þrotlausri vinnu venjulegs vinnandi ...











.jpg)
